|
Lyfjatæknanám fer fram við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Markmið lyfjatæknabrautar er að sérmennta lyfjatækna til starfa í apótekum, sjúkrahúsapótekum, lyfjaheildsölum, lyfjaframleiðslufyrirtækjum og í opinberum stofnunum.
Lyfjatækni er sérhæfð heilbrigðisgrein og lyfjatæknar eru heilbrigðisstarfsmenn. Starfsheiti lyfjatækna er lögverndað á Íslandi. Lyfjatæknifagið hefur alþjóðlega hliðstæðu og lyfjatæknar menntaðir á Íslandi hafa fengið réttindi til að starfa sem slíkir í öðrum löndum.
Lyfjatæknar vinna fjölbreytt störf víða í samfélaginu. Starfsvettvangur þeirra er apótek, sjúkrahúsapótek, lyfjaheildsölur, lyfjaverksmiðjur og rannsóknarstofnanir, svo og opinberar stofnanir. Lyfjatæknar annast rannsóknir, framleiðslu, dreifingu og sölu lyfja og sjúkravara og annast einnig uppfræðslu um meðhöndlun og notkun.
Meðalnámstími á lyfjatæknabraut er fjögur og hálft ár, samtals 162 einingar, sem skiptist í 2-3 anna aðfararnám, 6-7 anna sérnám auk fjórtan vikna starfsnáms í apóteki. Nánar tiltekið er um að ræða 40 eininga nám í almennum greinum, 108 eininga nám í sérgreinum og 14 vikna ólaunað starfsnám í apóteki sem metið er til 14 eininga.
Námskrá Lyfjatæknabrautar
Til baka
|